Færsluflokkur: Bílar og akstur

Orð í svefnrofanum

Ég ætla að fara að blogga og setja link á facebook þegar mér finnst það nógu merkilegt sem ég skrifa.

Það hafa oft komið til mín setningar og orð um það leyti sem ég vakna eða rétt á eftir. Ég man þetta stundum bara í smá tíma ef ég skrifa það ekki niður eins og gerist með draumana. Þeir eru allt í einu gleymdir þó þeir hafi verið mjög eftirminnilegir og ég alveg viss um að ég muni þá alla tíð.

Í morgun kom setninginn.

Það er alveg sama hvað öðrum finnst um þig, þú ert alltaf nógu góð.

Þessa setningu man ég því ég rifjaði hana upp strax og ég fann að þetta er svo mikill sannleikur.


Ljós heimsins

Fór á leikritið Heimsljós í þjóðleikhúsinu í gær. Það var flott sýning þó mér fyndist endirinn dáldið langdreginn. Sýningin skyldi mikið eftir sig og nú ætla ég að lesa þessar bækur hans Laxness en ég hef ekki gert það..eða bara brot af ,,Ljós heimsins" á unglingsárum. En þær hugsanir sem ég sit uppi með eru um það hvenær menn verða eða heilagir... Hvort það að vera góður við þá sem eiga bágt og taka aldrei afstöðu til neins sé í raun hlutleysi þess sem ekki dæmir. Hvort það sé sprottið af kjarkleysi eða af kjarki að þora að dæma engan og ekkert en vera bara hluti af lífinu og umbera allt sem það gefur og tekur. Ólafur fann svo til með þeim sem eiga bágt og mátti ekkert aumt sjá en var þessvegna svo ,,meðvirkur" að hann lét alla ,,snúa sér" eins og hann segir í leikritinu en hann segir líka ef fólk vill snúa manni afhverju ekki að gefa þeim þá ánægju að láta snúa sér. Ég nota orðið meðvirkni því maður getur aldrei þóknast öllum og gert öllum til hæfis...Hann var í rauninni vingull á þessa heims mælikvarða en kannski ekki á annars heims?..Er maður sem finnur svona til með öllum og vill engum illt í raun í helgur maður eins og Jesús og er þessvegna krossfestur af heimnum? Þetta eru spurningar sem ég er að velta fyrir mér þó mín skoðun sé kannski sú að hann hjálpi fáum þegar hann getur ekki staðið með sjálfum sér....Og getur heldur ekki staðið með neinum því þá er hann á móti öðrum... En ég ætla að lesa bækurnar til að mynda mér frekari skoðun á þessu.. Kannski er Ólafur helgur maður og konurnar vísa honum veginn?...Enda heita ein Vegmey og hin býr á Veghúsum..
Það verður gaman að lesa bækurnar..þegar ég finn tíma.

Hvað skiptir máli?

Ég er núna aðallega að skrifa til að skrifa en ég hef ekki farið inná bloggið lengi. Þetta ár 2011 er að enda og ég ætla að hafa það eitt af mínum nýársheitum að skrifa meira hérna. Ásamt því að breyta mataræðinu og grennast eins og alltaf;-) Svo var ég að ákveða að gefa út 2 bækur..Eina barnabók og eina ljóðabók. Svona fyrir utan allt annað sem ég ætla að gera. Þetta ár er líka mikilvægt þegar kemur að andlegum upplifunum og þroska og þessvegna ætla ég líka að uppljómast á árinu. Þetta segi ég bæði í gríni og alvöru.
Það borgar sig ekki að tala mikið um trú og svoleiðis í svona bloggi..Fólk blandar alltaf saman trú og trúarbrögðum. Svo þegar Kirkjan eða Krossinn eða Vottarnir hafa skandalíserað þá er Guð vondur. Allt var þetta Guði að kenna eða því að fólkið var trúað. Bull og vitleysa auðvitað en þannig fer það í landann.
Guð eða Æðri máttur eða hvað þú kýst að kalla það (ég myndi kalla það alheimsorkuna sem býr í mér og þér og öllu sem er) er ekki í tísku núna.
Ég veit samt að þessi orka verður sérlega sterk þetta árið og þess vegna er lag að nýta þá orku.
En svo ég komi mér nú að efninu sem er spurningin; Hvað skiptir máli? Það sem mér finnst skipta öllu er kærleikurinn.
Og mikið vildi ég að hann sæti alltaf í fyrirrúmi hjá mér, en svo er ekki því miður. En það er samt takmarkið hjá mér að ná því.. Hjög háleitt takmark og kannski næ ég því ekki í þessu lífi en þangað stefni ég. Því það er alveg rétt sem Jesús segir í Fjallræðunni, það skiptir ekki máli hvort þú sért fræður og ríkur...vegni vel að öllu leyti ef enginn er kærleikurinn er það allt hjóm..eða eftirsókn eftir vindi eins og Laxnes myndi orða það. Þeir sem hugsa um þessi mál vita þetta..
Það er kærleikurinn sem skiptir mál. Það er okkar niðurstaða. Mín, Laxness og Jesú..

Guð í alheimsgeimi

Finnst ég ekkert hafa að segja í dag. Hef samt verið að hugsa um þennan Guð sem ég finn svo vel fyrir. Veit alveg að það er eitthvað þarna, einhver orka sem gefur þessu lífi einhvern ljóma sem það hefði annars ekki. Guð í mínu tilfelli er kærleikur og ljós en hann má heita Andrés Önd ef einhverjum líður betur með það.
Margir fara í vörn ef talað er um Guð. Orðið Guð hefur litast af allskonar óhróðri sem er verk þeirra sem vilja nota nafn Guðs sér til framdráttar og fara í stríð í Guðs nafni etc..
Já en þetta er bara ruglið í okkur mönnunum en við erum auðvitað full af okkar egói og erum þar að auki mannleg :-)
Nog með það í dag. Held áfram með þetta seinna því þessi umræða er mér hjártans mál.

Stefna Besta flokksins í allskonar

Ég er svo ánægð með að Samfylking og Bestiflokkrinn er komnir í forystu í borginni.. Hefði ekki viljað hafa það öðruvísi og svo sýna þeir að þeir eru tilbúnir að vinna með góðu fólki í hvaða flokki sem þeir eru. Nú eru Hanna Birna og Sóley komnar í embætti og fá að vera með. Ég hef voða lítið vit á pólitík þannig að ég veit ekkert hverju þær stjórna en ég er hrifnust af því að Besti flokkrinn er að boða nýja hugsun. Hingað til hefur vantað svona fólk sem hefur skapandi hugsun hvað varðar form og reglugerðir. Pólitíkusar hugsa bara sem svo sað vona sé þetta, hefur jafnvel alltaf verið og eru löngu hættir að spyrja hversvegna. Og ég spyr mig oft hversvegna þarf stjórnarandstæðan alltaf að vera á móti jafnvel þegar vel er gert? Hvers vegna getur gott fólk ekki starfað áfram þegar það stendur sig vel þó að flokkurinn hafi fallið...
Mér finnst þetta skref hjá nýrri Borgarstjórn að meta það fólk sem vill starfa að góðum hlutum hjá borginni og hafa það með en ekki á móti mjög virðingavert. Þetta viðhorf þarf í ríkisstjórnina en þar er stjórnarandstæðan ekkert að hjálpa stjórninni við að leysa vanda þjóðarinnar heldur fyrst og fremst að hugsa um eigin rass og flokksins síns...
Leið á þessu...Leið á leiðinlegum fréttamönnum sem spyrja sömu leiðinlegu spurninganna eftir sömu formúlunni sem hinn harði töffara fréttamaðurinn. Má fjölmiðlapólitíinn ekki líka breyta um stíl?..Það vantar nýja hugsun í fjölmiðlapólitíkinna. Það vantar stefnu bestaflokksins í allskonar...

Bjarni hissa!!!

Nú ég hef ekki séð annað en sjálfstæðismenn geri í því að draga fram fréttir sem eru oft bara til að rægja stjórnina og einstaka stjórnmálamenn..og tefja fyrir ýmsum málum. Og Bjarni sjálfur ætti fyrir löngu að vera búin að draga sig í hlé vegna þess hversu tengdur hann er fjarmálabraskinu sem átti sér stað hér fyrir hrun,,nei en það er eins og Sjálfstæðismönnum leyfist allt en öðrum ekkert. Og auðvitað má ekki koma fram að þeir hefðu glaðir gert miklu verri Icesave samning. Það að þeir séu á móti Icesave núna hefur ekkert með það að gera að þeir séu að hugsa svo mikið um þjóðarhag...frekar um að koma höggi á stjórnina og þar sem þeir eru í stjórnarandstöu að þykjast geta gert betur...
mbl.is „Makalaust innlegg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eignast íbúð.

Á síðustu 6 árum hef ég flutt 6 sinnum. Í 4 skipti hefur það verið vegna þess að eigundum dettur eitthvað sniðugt í hug eins og að skilja, selja íbúðina, leigja túristum o.s.frv Og í öll þau skipti átti ég að fá íbúðina í allavega 3 ár...
Ég hef borgað háa leigu. Hærri en ég hef ráð á og skuldirnar vaxa þar að leiðandi stöðugt. Fyrst var ég með sérstakar húsaleigubætur sem minnkuðu all svakalega eftir að ég hafði fastar tekjur hjá borginni en þar er miðað við að tekjurnar megi ekki fara yfir 2 milljónir í árstekjur. Og það eru brúttótekjur. Svo manneskja sem fær 180.000 kr á mánuði í brúttótekjur (fær þá væntanlega um 150.000 kr útborgað) Hún er komin yfir fátækramörkin og við það minnka sérstöku húsaleigubæturnar niður í ca 25.000 kr á mánuði. Ég borgaði 115.000 kr á mánuði í leigu - 25.000 kr=90.000
Svo dæmið lítur svona út. 150.000-90.000 kr eru 60.000- símreikningur ca 18.000 (oft meira) með nettengingu og öllu = 42.000 Bensín ca 25.000 á mánuði. Þá eru 17.000 kr eftir. Þá þarf ég að borga 17.000 kr í bílalán = 0 kr
35.000 í annað lán og ef námsláninu er dreift á alla mánuðina eru það ca 8000 kr á mánuði + bifreiðagjöld, afnotagjöld, tannlæknir, píanótímar fyrir stelpuna 8000 kr
Sem betur fer hef ég haft smá aukatekjur en skuldirnar hrannast auðvitað upp því þær eru ekki stöðugar og svo eru önnur útgjöld eins og hjartamyndartaka, gleraugu, linsur smurning fyrir bílinn og skoðun og margt fleira.
Það skal tekið fram að ég hvorki reyki né drekk en leyfi mér að fara á kaffihús af og til.
Ég rakst á það á netinu að í Árborg væri viðmiðið 3 milljónir í árstekjur þegar sérstakar húsaleigubætur væru annars vegar, sem væri nær. Veit ekki afhverju fólk á að geta lifað af minni tekjum í Reykjavík. Þætti fróðlegt að vita það.
En hvenær ætti ég að geta safnað fyrir íbúð eða uppí hana...Ætli ég verði að flytja einu sinni á ári til dauðadags??????
Ég er orðin voða þreytt á því að geta ekki lifað mannsæmandi lífi án þess að vinna myrkrana á milli eða bæta á mig skuldum endalaust..Mér finnst líka að það eigi að vera möguleiki fyrir manneskju sem er að borga ca 100.000 á mánuði í leigu að eignast íbúð.

Borga eða ekki að borga...það er spurningin.

Ég verð að skrifa aðeins um þessi mál. Mér finnst auðvitað ekki rétt að við séum að borga fyrir afglöp sem fáeinir eða allnokkrir fjárglæframenn hafa framið. Og ég myndi líka hætta að borga ef ég héldi að það yrði þannig. Mér finnst hins vegar að það sé skylda okkar að halda þjóðfélaginu á floti meðan þetta gengur yfir. Ég er ekki með himinhá lán en hefur tekist að semja um bankalánið og annað lán sem ég tók í erlendri mynt. Ég hélt að allir gætu það...er það ekki raunin? Eða er fólk að æpa yfir höfuðstólnum sem hefur hækkað um helming. Ég trúi því og treysti að ástandið batni og ég ætla ekki að hætta að borga. Ef ég gerði það væri ég að leggja ennþá meiri byrðar á þá sem borga sínar skuldir og á þjóðfélagið í heild. Ég geri mér grein fyrir að margir eru verr settir og ég og ég skil þeirra sjónarmið afskaplega vel... Ef krónan hefur ekkert styrkst eftir 1-2 ár og meiningin er að ég borgi þetta klúður þá hætti ég að borga. Þangað til geri ég mitt besta...

Harmleikur í Heiðmörkinni

Þetta er mjörg alvarlegt mál og ég er sammála mörgu sem skrifað er hér en þegar fjölmiðlar fara offari og vísa til allra þessara stelpna sem hrotta þá staldra ég við. Ég staldra líka við þegar talað er um að það eigi að meðhöndla þessar stúlkur sem glæpamenn það sem eftir er. Það er vís leið til að gera þær að glæpamönnum.
Mér dettur ekki í hug að allar þessar stelpur hafi verið sammála þessu ofbeldi í hjarta sínu. Ég held að þarna hafi múgæsing átt sér stað og flestar þær sem beittu ofbeldið eða voru viðstaddar ættu líka að fá áfallahjálp.
Það hlýtur að hafa verið hræðileg reynsla fyrir margar. Svo eru þær sem voru aðalgerendunnir. Hvað var í gangi? Voru þær á eiturlyfjum? Spurningarnar sem við eigum að spyrja eru; Hvað veldur því að ungar stúlkur beita þvílíku ofbeldi? Hvað er í gangi í þjóðfélaginu og hvernig er hægt að breyta hugarfari ungs fólks? Ég trúi ekki á að setja öryggisverði og lögreglu til að passa uppá að ekkert slæmt gerist. Það þarf að sinna forvörnum og skoða hvað er að móta ungdóminn. Það eru margar hliðar á þessu máli. Við megum ekki dæma heilan hóp eftir nokkrum ofbeldisseggjum. Ég hef mjög mikla samúð með þoladanum og hennar fjölskyldu en líka með fjölskyldum gerendanna og stelpnanna sem voru viðriðnar þetta ofbeldi. Dæmum ekki svo við verðum ekki dæmd. Ég hljóma þá bara eins og páfinn.
mbl.is Hafa játað að hafa haft sig mest í frammi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðmerkurárásin

Þetta er hræðilegt mál og snertir fleiri en flestir hugsa útí. Ungar stúlkur taka fyrir eina og berja hana í klessu. hvað er í gangi? Hversvegna gerist slíkt? Maður spyr sig aftr og aftur. En þegar fyrirsagnir eins og Heiðmerkurhrottarnir og slíkt kemur í blöðin staldra ég við. Ég er viss um að þetta eru ekki allt slæmar stúlkur. Ég er viss um að þær hafi ekki allar verið samþykkar þessu ofbeldi...Þarna er einhver múgæsing sem fer af stað....Eitthvað sem gerist allt of oft. Ég hef samúð með gerendunum og þeirra fjölskyldum líka því sennilega hafa sumir foreldrarnir ekki haft hugmynd um að dóttir þeirra væri í vondum félagsskap eins og sagt er. Sumir hafa kannski vitað af einhverjum erfiðleikum en aldrei haldið að dóttir þeirra myndi gera slíkt. Munum að það eru margar hliðar á öllum málum og dæmum ekki svo við verðum ekki dæmd...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband